Vandræðanlega fljótt að líða!
Núna
eftir tvo daga er dvölin mín hálfnuð (5/10✓). Hvert flýgur tíminn eiginlega
spyr ég nú bara? Þetta er ótrúlegt en ég er mjög sátt með að þetta líði svona
hratt því ég hlakka ekkert smá til að koma heim og hitta alla en á eftir að
sakna elsku Parísar og fjölsskyldunar minnar ótrúlega mikið líka.
|
Tók þessa á stórri byggingu sem ég man ekki hvað heitir. |
Síðustu vikur:
En á þessum fimm mánuðum hef ég
þroskast ekkert smá mikið & fundið sjálfa mig eitthvernveginn. Ég veit
þetta hljómar frekjar klisjukennt og fáránlega en svona er það bara! Þessir
fimm mánuðir hafa reyndar verið ekkert smá erfiðir á tímabilum en þvílíkt
lærdómsríkir, krefjandi og skemmtilegir! Er búin að taka smá svokallaðann
''skiptinemarússíbana'' en það var fyrir kannski tveimur mánuðum & í eitt
skipti. En það er bara partur af reynslunni, finnst það reyndar aðeins fyndið
eftir á. Grenjandi yfir ekki neinu því að mér fannst ekkert vera að ganga upp,
en þá þýðir ekkert annað en að rífa sig upp, hætta að væla og gera eitthvað í
málunum.
|
Get ekki beðið eftir að koma heim í sveitasæluna! |
|
Alltaf á Þriðjudögum er ég búin 09:30 og þá ferð ég í Monoprix og kaupi mér Oreo-ís á eina evru. |
|
Fyrsta ástin í lífi mínu, lýg því ekki að ég sé að fara fá mér lítið Eiffel tattoo við tækifæri. |
|
Þetta ógeð eltir mig. Hefur ekki snjóað svona mikið í París í mörg ár. |
|
og bestu |
David kom í 5 vikur en hann er kærasti Violettar
systur minnar. Hann var yndislegur og við urðum ekkert smá góðir vinir á þessum
stutta tíma, finnst hann vera svona eins og bróðirinn sem ég átti aldrei. Hann
sléttaði alltaf á mér hárið, við rifumst endalaust, hlógum líka af eitthverju
óeðlilega fyndnu sem átti sér stað hérna í France. Tökum það sem dæmi þegar við
fórum í fyrsta partýið sem var í Yerres. Við vorum ekki búin að vera þarna nema
í korter þegar hellingur af fólki bankar og kemur inn. (Og í Frakklandi þegar
þú ferð í partý þá þarftu að kyssa hvern einasta þarna inni tvo kossa á kinnina
og bara ef þú ert ''stelpa''). David var greinilega eitthvað alveg að misskilja
og þegar einn tvítugur strákur kemur að honum og ætlar að gefa honum svona
franskt ''handshake'' eins og allir strákar í Frakklandi gera þá bara kyssir
David hann tveimur kossum á kinnina og gaurinn bókstaflega fraus. Ég hélt ég
myndi deyja úr hlátri og þá kallaði eitthver ''hann er frá Nýja-Sjálandi''x5.
Hann var alltaf að lenda í einhverju svona vandræðalegu hérna, á svona milljón
sögur og finnst ekki leiðinlegt að minna hann á þær! En í tilefni þess að hann
var hér þá fórum við svona 15 sinnum til miðborgar Parísar og gerðum helling af
hlutum. Til dæmis:
Eiffel Tower að kvöldi til (hann glansaði á meðan), Notre Dam, Champs
Elysees, Rue du rivoli var gengin upp og niður nokkrum sinnum,
Einkapartý í Les Invalides, Wissant sem er lítið sjávarþorp rétt við
Englandsstrendur, Cathédrale brúin og ég gæti talið endalaust upp aðra
fleiri glæsilega staði í París.
|
útsýni úr Eiffel! |
Jól & fríið.
Jólin
komu og fóru. Þetta var mjög skemmtilegur tími en ekkert smá öðruvísi.
Á Þorláksmessu varð ég reyndar lasin. Hélt ég myndi deyja! Hafði sem betur fer
tvo einkaþjóna sem nenntu að gera allt fyrir mig og mömmu sem bara var og er
yndisleg!
24. desember var farið í göngutúr og svo í messu um kvöldið, ekkert jólalegt
reyndar og mér leið ekki eins og það væru jól en ég var búin að undirbúa mig
fyrir engan aðfangadag þetta árið.
25.desember þá var þetta miklu jólalegra. Um kvöldið opnuðum við pakkana og
borðuðum ótrúlega mikið af góðum frönskum mat. Ég held að við höfum verið 11
manns allt í allt. Eftir að hafa tekið einn sopa af rósarvíninu tókst mér
reyndar að hella öllu niður á borðið en það var bara fyndið.
Svo eftir matinn
opnuðum við pakkana! Fékk hálsmen úr ekta demöntum frá pabba og mömmu í France
sem mér þykir óeðlilega vænt um og tými ekki að nota fyrr en ég kem heim til
Íslands til að muna alltaf eftir þeim. Ég var ekkert smá ánægð með allar gjafirnar.
Takk allir, þið eruð æði!
|
Noel aka Jól! |
|
Góð vinkona? Já. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Labbitúr í París. |
Áramótin voru fín líka en allt
öðruvísi en þau síðustu sem ég hef upplifað. Ég, Violette, Manon, Ava og David
fórum saman í partý sem var reyndar líka í Yerres í heimahúsi. Áður en við
fórum borðuðum við pizzu og fórum síðan beint í partýið. Enginn kalkúnn með
öllu tilheyrandi eins og á Íslandi með elsku fjölskyldunni minni!!
Mun kunna að meta næstu jól og áramót svo þúsund sinnum meira!
Allavegana þegar við komum í partýið voru þetta semsagt 20 franskir strákar og
1 stelpa. Já ein stelpa sem átti víst kærasta þarna. Stelpur á Íslandi þið
væruð ekkert að hata þetta!! okay djók..
Þetta var samt sem áður mjög skemmtilegt partý fyrir utan það að
kærustufaggarnir þarna tveir hurfu snemma um kvöldið og þá var það bara ég og
strákarnir eftir en ég fékk að spreyta mig aðeins í frönskunni allt kvöldið og
lærði ekkert smá mikið í leiðinni.
Við gistum síðan þarna og fórum hress heim daginn eftir. Sá dagur var mjög
skemmtilegur. Áramótakampavínið var ekki alveg eins vinsælt hjá sumum eins og
það var deginum áður..
Svo fór ég víst á manifestation mótmælagöngu með pabba sem tók einn Sunnudag. Það var mikil upplifun þangað til ég tók eftir því að ég var að mótmæla brúðkaupi samkynhneigðra. Já ég sem hef ekkert á móti þessu og finnst réttara sagt FÁRÁNLEGT afhverju samkynhneigt fólk megi ekki gifta sig í Frakklandi og eignast börn? Þvílíka ruglið. Ég fór að rökræða við einn sjálfboðaliða á AFS-campinu og er alltaf að rökræða við einhverja sem halda því fram að það sé alveg út í hött að leyfa þessu fólki að eignast börn. Afhverju ekki?? hvað gerir það ykkur elsku þröngsýna fólk.
Því miður gat ég ekki farið á manifestation-göngu til að styrkja hjónaband og ættleiðingu barna hjá samkynhneigðu fólki því ég var á AFS-campi..
|
Flippkisi með kampavínið! |
|
my fav! |
|
systur mínar |
|
Elska að tala við þessi dýr og get ekki beðið eftir að koma heim til þeirra!
PS fallegustu á leið á árshátíð MA |
|
Tilbúin í áramótapartý '12 |
Janúar og febrúar
Svo
fór David 15.janúar og dagarnir eftir það einkenndust af mikilli sorg. Violette
og ég lögðumst í dvala í viku og horfðum á Suits saman með mikið af nammi.
Þetta gekk örugglega svona í rúma viku en þá tók alvaran við, skólinn. Ég sem hélt
að ég þyrfti ekki að læra neitt, sú er ekki raunin, held ég þurfi að taka
prófin sem verða núna áður en sumarið kemur. Maman/mamma fór reyndar í
foreldraviðtal fyrir mig og madame Pinguet elskar mig og sagði að ég hefði
ekkert smá góð áhrif á bekkinn og væri stórkostlegur nemandi. Ég veit ekki
alveg hvar hún sér þessa ''svakalegu'' hæfileika en þetta er allavegana
jákvætt. Þarf reyndar að læra allt í hennar tímum, um daginn las ég ljóð og
flutti fyrir allan bekkinn sem gekk reyndar mjög vel. Næsta verkefni einkennist
af því að ég þarf að taka mynd af glasi með vatni í og það þarf að vera
geðveikt flott landslag á bak við. Og í vatninu er eitur en þú getur ekki séð
það. Gangi mér vel segi ég nú bara. Svo í allri þessari viku er
stærðfræðikennarinn minn veikur svo þetta verður klassa vika!
Annars er franskan öll að koma og ég er löngu hætt að nota enskuna. Ég er farin að skilja nánast allt en þarf aðeins að æfa mig í beygingum á óregulegum sögnum.
|
Get ekki beðið eftir að geta verið með þessum 3 aftur! |
|
Ferskur miðnætur-útsýnispallsjogerísrúntur með mínum nokkrum dögum áður en við fórum allar í sitthvort landið.. |
hálfsárs
fjarveru!
|
Bara mánuður
Svo í júní fæ ég tvær Frakklandspíur í heimsókn! Svönu
og Rakel sem er betur þekkt sem refurinn hér í France.
Þá er þetta komið, bið að heilsa öllum
þarna á klakanum og sjáumst í sumar!
Gros
gros bisous,
Guðbjörg Einarsdóttir
|
|
fallegasta tvíburasystir mín! |